Skip to Content

Hertz Bílaleiga Flugleiða fékk afhentar þrjár glæsilegar hvítar farangurskerrur

Í dag afhentum við Hertz Bílaleigu Flugleiða þrjár hvítar farangurskerrur. Heildarburðargeta þeirra er 750kg. og eru þær á einum öxli. Kerrurnar eru bæði með hurð á hægri hlið og að aftan, nefhjóli, varadekki, loftventli o.fl. Búið er að panta fleiri svona kerrur af öðrum aðila. Mikið er að gera í smíðinni við að smíða allskonar kerrur eða allt á haus þessar vikurnar.