Íslensk smíð nýtt hjá okkur

Framleiðum kerrur með alveg nýju útliti. Kerrurnar eru allar galvanesaðar og smíðaðar m.a. á þýskar 750kg. gæða hásingar. 13" dekk. Bjóðum kerrurnar með 35cm. skjólborðum, breidd skúffu 1,25mtr. og lengd 1,50, 2,00, 2,50 og 3,00mtr. Verðin eru frábær. Smíðum einnig 2ja öxla kerrur lengd 3,10-4,20mtr. Dekk fyrir utan eða undir. Heildarburðargeta 2.000-3.500kg. Leitið upplýsinga erum í Flugumýri 8, Mos., opið kl.13-16.30
Ýmsar gerðir af hestakerrum
.JPG)
Þýskar og tékkneskar. Fáanlegar stærðir eru 2ja og 3ja hesta. Hliðar úr áli eða úr húðuðum plötum og með segl eða plasttoppi. Geymsla fram í fyrir hnakka og beisli og annan búnað.
Woodypet spónakögglarnir komnir aftur

Woodypet spónakögglarnir vinsælu frá Kanada eru komnir aftur, en þeir eru í 13,6kg. pokum og 80 pokar á bretti. Einnig eigum við til spæni í 20kg. böllum frábær þýskur spænir sem er mikið pressaður. Frábær gámaverð. Kögglarnir eru aldrei vinsælli en nú en við bjóðum þá einnig frá Eystrasaltslöndunum í stórsekkjum 800+kg. Sekkirnir eru ódýr pakkning pr.kg. Frábær virkni kögglanna 1 kg. af kögglum samsvarar allt að 2-4kg. af spæni í rakadrægni. Sendum stærri kaup heim um allt Stór-Rvíkursvæðið og víðar. Leitið tilboða t.d. heimkomið.
Stækkanlegar hliðgrindur

Sterkar og vandaðar alvöru hliðgrindur, sem hafa fengið góðar móttökur. Hliðgrindurnar eru í stærðunum 1,05-1,70mtr., 2,05-3,00mtr., 3,05-4,00mtr., 4,05-5,00mtr., 5,05-6,00mtr. Hliðgrindunum fylgir allt sem til þarf vandaðar lamir og lokur, eins og þær gerast skemmtilegastar. Hliðgrindurnar eru bæði til fjárheldar, þéttari að neðan, en lægri 0,90mtr. og svo fyrir kýr og hesta 1,10 mtr. háar. Skoðaðu (smella á mynd) hliðgrind undir flipanum "Landbúnaður".
Krabbameinsrannsóknir

Raförninn þjónustuaðili krabbameinsrannsóknartækja fékk afhenta þessa sérútbúnu yfirbyggðu kerru framleidda í Þýskalandi. Kerran hefur þann eiginleika að geta slakað afturenda alveg niður að jörðu, en það er mikill kostur þegar þarf að rúlla inn þungum og viðkvæmum tækjum. Kerran er fyrsta færanlega leitarstöð á hjólum hér á Íslandi. Til hamingju Ísland!
Patura kúaburstar í sigurför
Móttökur bænda á Patura kúaburstum hafa verið góðar og hefur Landbúnaðarháskólinn að Hvanneyri nú nýverið fjárfest í Patura kúaburstum fyrir sína gripi. Einnig hefur Nautastöðin á Hesti tekið Patura kúabursta í notkun.
Eigum til nokkra bursta á gömlu verði, tryggið ykkur bursta fyrir hækkanir.