Sumarskeifur í úrvali. Sama lága verðið!

Tvísmelltu á mynd CEMTEC sumarskeifur í úrvali. Sænsku CEMTEC skeifurnar er búnar að fá frábærar viðtökur hjá okkur. Járningamenn sem aðrir eru afar ánægðir með lagið á þeim og hvað þær eru mikið og flott lagaðar. Allar eru þær með uppslætti og með óvenju miklu "solitare" vörn fyrir hófbotninn. Verðið er frábært eða 890,- parið. Afsláttur ef keypt er í magni. Erum einnig með botna, hófraspa, járningavörur, VETTEC/SILPAK hóffylli- og viðgerðaefni allt á frábæru verði. Opið á milli kl.13-16.30 alla virka daga. Við erum staðsett í Flugumýri 8, Mosf. Sendum hvert á land sem er.

Spónakögglaundirburður - Woodypet er toppurinn

Frábær vara til notkunar í hesthúsi, fjósi, svínahúsi og öðrum stöðum fyrir hverskonar dýrahald. Spónakögglarnir eru í litlum pokum eða í 700+kg. sekkjum, en sekkirnir eru mjög hentug stærð fyrir stærri hús. Kögglarnir eru mjög góð innflutt vara. Pokarnir eru mjög handhæg stærð í meðhöndlun sem og flutningi fyrir minni bíla. Mjög mikil virkni og til samanburðar jafnast 1 kg. á við 2-4 kg. af venjulegum spæni í rakadrægni, skv. upplýsingum framleiðanda. Woodypet aldrei vinsælla en það er í 13,6 kg. pokum 80 pokar á bretti. Sjá nánar frekari upplýsingar um útsölustaði undir flipanum hér á vinstri hönd þ.e. "Söluaðilar".

Kostir við spónaköggla fram yfir margt annað er:

  • Mjög mikil rakadrægni
  • Umhverfisvænn undirburður. Má fara beint á túnið.
  • 100% náttúrulegt efni hreinn viður
  • Lítið ryk minni hætta á öndunarfærasjúkdómum
  • Minni hætta á ofnæmissjúkdómum
  • Heilbrigðari hófar, gott rakastig
  • Ammoníakslykt minnkar
  • Flutningskostnaður verulega lítill í samanburði við annan undirburð
  • Þarf mikið minna geymslupláss
  • Hentug stærð umbúða
  • Mokstur minnkar umtalsvert
  • Þrif á hesthúsum minnkar
  • Sparar umtalsverða vinnu við hirðingar
  • Almennt betri heilsa og hrossin/dýrin hrein og falleg

Smelltu á mynd