Woodypet er toppurinn í undirburði
Hinir vinsælu kanadísku Woodypet spónakögglar í 13,6kg. pokunum til sölu. 80 pokar á bretti meira.....
Frábær vara til notkunar í hesthúsi, fjósi, svínahúsi og öðrum stöðum fyrir hverskonar dýrahald. Spónakögglarnir sem eru til sölu í dag eru Woodypet í 13,6 kg. og aðrir í 700+kg. sekkjum, en sekkirnir eru mjög hentug stærð fyrir stærri hús. Kögglarnir eru mjög góð innflutt vara. Pokarnir eru mjög handhæg stærð í meðhöndlun sem og flutningi fyrir minni bíla. Mjög mikil virkni og til samanburðar jafnast 1 kg. á við 2-4 kg. af venjulegum spæni í rakadrægni, skv. upplýsingum framleiðanda. Sjá nánar frekari upplýsingar um útsölustaði undir flipanum hér á vinstri hönd þ.e. "Söluaðilar".Leitið tilboða í meira magn og heimkeyrslu. Opið á milli kl.13-16.30 alla virka daga. Við erum staðsett í Flugumýri 8, Mosf. Sendum hvert á land sem er.
Kostir við spónaköggla fram yfir margt annað er:
- Mjög mikil rakadrægni
- Umhverfisvænn undirburður. Má fara beint á túnið.
- 100% náttúrulegt efni hreinn viður
- Lítið ryk minni hætta á öndunarfærasjúkdómum
- Minni hætta á ofnæmissjúkdómum
- Heilbrigðari hófar, gott rakastig
- Ammoníakslykt minnkar
- Flutningskostnaður verulega lítill í samanburði við annan undirburð
- Þarf mikið minna geymslupláss
- Hentug stærð umbúða
- Mokstur minnkar umtalsvert
- Þrif á hesthúsum minnkar
- Sparar umtalsverða vinnu við hirðingar
- Almennt betri heilsa og hrossin/dýrin hrein og falleg





